Þroskaþjálfa vantar í starf með fötluðu fólki á hæfingarstöðina að Bæjarhrauni

Þar fer fram skipulögð vinna í grunn- og skynörvun annarsvegar og hinsvegar þjálfun í notkun óhefðbundinna tjáskipta ásamt almennri þjónustu við fólk með mikla stuðningsþörf.

Í boði er:

  • Framtíðarstarf í 100% dagvinnu.
  • Spennandi, lærdómsríkt og framsækið starf.
  • Fjölbreytt verkefni.
  • Góð aðlögun.

Helstu verkefni:

  • Taka þátt í starfi með þjónustunotendum með áherslu á að auka færni í óhefðbundnum tjáskiptum.
  • Stuðla að virkni, velferð og vellíðan þjónustunotenda.
  • Fylgja eftir einstaklingsmiðuðum þjálfunaráætlunum og starfsáætlun.

Hæfniskröfur eru:

  • Þroskaþjálfamenntun og starfsleyfi sem þroskaþjálfi
  • Samstarf- og skipulagshæfileikar.
  • Samviskusemi, þolinmæði og hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Áhugi á málefnum fatlaðs fólk.
  • Jákvætt viðmót og rík þjónustulund.
  • Hreint sakavottorð.

Umsóknarfrestur er til og með 05. október 2018.     

  • Laun samkvæmt kjarasamningi launanefndar við ÞÍ eða hlutaðeigandi stéttarfélag.
  • Karlar jafnt sem konur eru hvött til að sækja um starfið.
  • Sótt er um starfið í gegnum heimasíðu Hafnarfjarðarbæjar www.hafnarfjordur.is undir laus störf.
  • Óskað er eftir að ferilskrá fylgi.

Upplýsingar veitir Halla Harpa Stefánsdóttir forstöðuþroskaþjálfi virka daga í síma 565-0446 milli kl. 08.00-16.00.