Niðurstaða Félagsdóms ljós

Þroskaþjálfafélag Íslands stefndi Reykjavíkurborg fyrir Félagsdóm til að fá viðurkennt að skrá yfir þau störf hjá Reykjavíkurborg sem eru undanþegin verkfallsheimild og birt var í B-deild stjórnartíðinda með auglýsingu nr. 80, þann 30. janúar 2015, taki ekki til félagsmanna stefnanda sem starfa á Áfangastaðnum Hátúni, Sambýlinu Bröndukvísl, Sambýlinu Hólmasundi, Sambýlinu Sólheimum og Sambýlinu Vesturbrún.
Félagsdómur tekur undir kröfur félagsins. Dóminn er hægt að skoða hér og einnig verður hann birtur á heimasíðu dómsins.