Morgunverðarfundur ÞÍ

Þann 20. nóvember veðrur ÞÍ með fyrirlestur fyrir fag- og stéttarfélaga Þí. Þar verða kynntar grunnstoðir hugmyndafræðinnar um Þjónandi leiðsögn, uppruna hennar og sögu á Íslandi.

Þjónandi leiðsögn byggir á einstaklingsmiðaðri nálgun þar sem samskipti á milli starfsfólks og notenda eru þungamiðjan. Mannleg gildi, vinátta, umhyggja, tengsl og hvatning eru grundvallaratriði í öllum samskiptum. Lögð er áhersla á að nálgast einstaklinginn með alúð, vináttu og umhyggju og hvetja hann til að setja sér markmið og veita aðstoð við að ná þeim.

Dagskrá:
8:30 – 09.00 Morgunkaffi
09:00  - 10:30 Fyrirlestur um Þjónandi leiðsögn, Arne Friðrik Karlsson, þroskaþjálfi
10:30 – 11:00 Fyrirspurnir og umræða 

Nauðsynlegt er að skrá sig og er það gert hér