Fundur þroskaþjálfa á Vesturlandi 31.mars

Fundur þroskaþjálfa á Vesturlandi verður haldinn 31.mars á bæjarskrifstofu Akranesskaupstaðar í fundarherbergi 1 á þriðju hæð, frá kl 14:00-16:00.

Erindi fundarins verður í höndum formanns Þroskaþjálfafélags Íslands , Laufeyjar Gissurardóttur. Hún mun fara yfir stöðuna í kjaramálum og segja frá helstu niðurstöðum starfsdaganna. Í lokin munum við spjalla saman um yfirfærsluna (samþættinguna), hvernig hefur gengið fram að þessu?

Bestu kveðjur, Berglind Ósk Jóhannesdóttir og Jórunn Petra Guðmundsdóttir.