Fundur með þroskaþjálfum á Sauðárkróki og Akureyri

Miðvikudaginn 17. nóvember voru haldnir fundir með þroskaþjálfum á Sauðárkróki og Akureyri. Trúnaðarmenn á stöðunum boðuðu til þessa funda og mætti formaður félagsins á fundina. Fundirnir voru vel sóttir á báðum stöðum. Farið var yfir kjarakönnun sem félagið gerði 29. september til 8. október síðastliðinn . Einnig var kynnt drög að kröfugerð félagsins og farið yfir sjóði BHM.