Fréttatilkynning vegn aðgerðaráætlunar ríkisstjórnarinnar

BHM, heildasamtök háskólamenntaðra á vinnumarkaði, leggur áherslu á að skuldir vegna námslána séu jafnan metnar til jafns við aðrar skuldir heimila þegar mótaðar eru aðgerðir til að létta skuldir landsmanna.

 Í tilefni af kynningu á aðgerðaráætlun ríkisstjórnarinnar um höfuðstólslækkun húsnæðislána setur BHM fram eftirfarandi kröfur:

  • að fyrirhuguðum tekjum ríkissjóðs af skatti á fjármálafyrirtæki verði jafnframt varið til niðurgreiðslu námslána, enda samanstandi verðtryggðar skuldir heimilanna af húsnæðis- og námslánum. Þannig sé tryggt að forsendubrestur vegna verðtryggingar sem stjórnvöld hyggjast leiðrétta nái til allra sem fyrir honum urðu.
  • að skattfrelsi séreignasparnaðar vegna niðurgreiðslu húsnæðislána nái jafnframt til námslána, enda sé í báðum tilfellum um að ræða verðtryggða lántöku vegna langtímafjárfestingar.