Upplýsingar um væntanlegar breytingar á A- deild LSR

Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins (LSR) hefur birt á vef sínum upplýsingar fyrir sjóðfélaga um væntanlegar breytingar á réttindakerfi A-deildar sjóðsins. Breytingarnar taka gildi 1. júní nk. í samræmi við lög nr. 127/2016 sem samþykkt voru á Alþingi í lok síðasta árs. 

Meðal annars má finna á vefnum lista með ýmsum spurningum sem varða áhrif breytinganna á stöðu sjóðfélaga og svör við þeim. Þá mun sjóðurinn á næstunni standa fyrir kynningarfundum um breytingarnar í Reykjavík, á Akureyri, Ísafirði og Egilsstöðum. 

Sjá nánar á vef LSR .