Nýr kjarasamningur milli ÞÍ og ríkisins undirritaður í dag.

Samningar við sautján aðildarfélög BHM við ríkið hafa verið lausir frá því síðast liðið haust. Klukkan 16 í dag  undirritaði samninganefnd ÞÍ nýjan samning með fyrirvara um samþykki félagsmanna en á næstunni verða efnisatriði hans kynnt innan ÞÍ og því næst borinn undir atkvæði. Gildistími hans er frá 1. september 2017 til 31. mars 2019