Nýr kjarasamningur Þroskaþjálfafélags Íslands við Reykjavíkurborg undirritaður

Hluti samninganefndar við undirritun.
Hluti samninganefndar við undirritun.

Í dag undirritaði Þroskaþjálfafélag Íslands nýjan kjarasamning við Reykjavíkurborg. Það var gert í samvinnu með Félagsráðgjafafélagi Íslands, Sálfræðingafélagi Íslands, Iðjuþjálfafélagi Íslands og Kjarafélagi viðskiptafræðinga og hagfræðinga

Nýr kjarasamningur gildir frá 1. apríl 2019 til 31. mars 2023. Samningurinn verður kynntur félagsmönnum sem starfa hjá Reykjavíkurborg mánudaginn 29. júní og rafræn kosning fer fram í kjölfarið. Félagsmenn sem starfa hjá Reykjavíkurborg hafa fengið tilkynningu þess efnis og eru nú þegar byrjaðir að skrá sig á kynningarfund.